November 20, 2008

Hilsen!

Ég er farin til Köben til að eyða gjaldeyrisforða þjóðarinnar. Einhver verður að taka það að sér!

November 14, 2008

Anti-ESB

Ég var að endurnýja vírusvörnina mína og þetta er ein af mörgum ástæðum fyrir því að ég vil ekki ganga í ESB:

esb.JPG

October 28, 2008

Nágrannar bróður míns

Tölvan er komin úr viðgerð og ég slapp aldeilis vel, borgaði samtals bara 7.500 kall og þarf ekki að fara í gegnum þá pínu að velja mér nýja fartölvu. HP Compaq Presario vélin eins og ég á hefur nú eiginlega verið skipt upp í HP Compaq og HP Pavillion. Það besta úr vélinni hefur verið dreift milli þessara tveggja. En það er seinna tíma vandamál.

Íbúðin er næstum tilbúin og aðeins fínpússningar eftir. Strákarnir voru hérna um daginn að klára flísarnar í eldhúsinu og ég sat í sófanum og horfði á Nágranna. Bróðir minn var stöðugt að labba framhjá mér með flísar úr eldhúsinu út á svalir til að saga þær til og í eitt skiptið stoppar hann aðeins, lítur á sjónvarpið og hnussar “sápuópera, iss!” Svo hélt hann áfram sína leið. Ég þurfti svo fljótlega að fara að taka matinn til og tók restina af Grönnum upp.

Þegar við vorum svo búin að borða og horfa á fréttirnar héldu þeir áfram að vinna og ég hélt áfram að horfa á þáttinn. Allt í einu spyr bróðir minn svo “Er búið að ná krökkunum og Karl út úr rústunum?” Ég horfði á hann undrandi og spurði hvort hann fylgdist með, en hann sagðist bara hafa séð tvær mínútur af þættinum deginum áður. Ég sagði honum að allir hefðu bjargast úr rústunum nema Jessica, hún hefði dáið. “Ó, svoleiðis”, sagði hann og hélt áfram að vinna.

Bróðir minn horfir á Nágranna, þó hann myndi aldrei viðurkenna það. Maður pikkar ekki upp nöfn á karakterum og söguþráðinn með því að “horfa í tvær mínútur”.

Mér finnst þetta kúl.

October 9, 2008

Sko!

Nú er ég hrikalega óþekk og blogga á vinnutíma (andköf) en ég þarf að venta.

Fréttir af íslenskum efnahagsmálum eru svo yfirdrifnar að ég hefði aldrei trúað að þetta væri hægt. Við erum á vonarvöl, á kúpunni, búin að vera, farin til fjandans og ég veit ekki hvað og hvað.

Vill fólk ekki bara róa sig aðeins?!

Þá meina ég einna helst fjölmiðlamenn. Þessar fréttir hafa lítil áhrif á mig, ég bíð bara róleg þar til hlutirnir jafna sig og ég treysti forsvarsmönnum okkar fullkomlega til að gera það sem þjóðinni kemur best. Það gerist ekki í dag, ekki á morgun og sennilega ekki í næstu viku, en þetta lagast allt saman á endanum. Við erum Íslendingar; við höfum áður reist okkur upp úr fátækt á mettíma og við getum gert það aftur. Betur, meira að segja, því nú höfum við lært ýmislegt sem við vissum ekki áður.

Ég horfði á helstu fréttirnar í gærkvöldi og slökkti svo á hljóðinu þegar hinir og þessir besserwisserar fóru að keppast við að spá eins miklum hrakförum og mögulega er hægt. Himininn var stjörnubjartur og tunglið var gullfallegt. Ætli margir hafi tekið eftir því?

Sumir eiga eftir að koma verr út úr þessu en aðrir vegna þess að þeir hafa kannski eytt um efni fram eða farið of geyst í lántökur. Með þeim hef ég samúð og vona að sama skapi að við lærum öll að ef við eigum ekki fyrir hlutunum, höfum við ekkert að gera með að kaupa þá. En við þurfum líka að muna að það besta í lífinu er ókeypis, eins og maðurinn sagði um árið, og við eigum að læra að njóta þeirra betur.

En ég ætla að halda áfram að vinna. Lappinn minn er í viðgerð og ég nenni aldrei að sitja við borðtölvu þegar ég kem heim. Íbúðin er gjörbreytt og fer smám saman að verða tilbúin og vonandi fer ég fljótlega að læra á alla nýju takkana og hvar hlutirnir eru geymdir. Það er gott að vera komin heim en það var líka voðalega gott að geta fengið íbúðina á Klapparstígnum lánaða í hálfan mánuð. Svo reyndar gripum við tækifærið og fengum æðislega íbúð SFR á Grandaveginum lánaða í þrjár nætur í viðbót; rafvirkinn kom fjórum dögum of seint og allt tafðist í kjölfarið.

Eins og bróðir minn, smiðurinn, sagði: “Helvítis iðnaðarmenn!”.

September 11, 2008

Málningarryk

Er það orð, málningarryk? Anywho, hvað sem það heitir, er nóg af því hérna heima. Það er verið að hreinsa gamla málningu af gluggunum og það er gert með svona frúmp-tæki sem breytir málningunni í überfínt ryk sem liggur yfir öllu og er marga daga að setjast. Þegar ég kom heim úr vinnunni á mánudaginn leit íbúðin út eins og kólumbískir kókaínbarónar hefðu slegist með stöffinu sínu heima. Ég var þrjú korter að ryksuga íbúðina. Líka á þriðjudag og í gær líka. Við erum farin að mynda sérstök bönd okkar á milli, ryksugan og ég.

Á mánudag flytjum við svo á Klapparstíginn og ég verð 101 miðbæjarrotta í hálfan mánuð. Ég set upp alpahúfu, drekk mokkakaffi og mótmæli virkjunum sem ég veit ekkert um á stöðum sem ég veit ekki hvar eru á landinu. Töff!

September 1, 2008

Ég þoli ekki…

… að týna hlutum. Það getur gert mig geggjaða.

Ég fattaði í kvöld að ég hef ekki hugmynd um hvar lopapeysan mín er. Eftir allvíðtæka leit í hálftómri íbúðinni er ég engu nær og man ekki einu sinni hvar ég sá hana síðast. Dálítið skerí þegar búið er að fara með gríðarlegt magn af fötum í Rauða krossinn… ég ætla rétt að vona ekki!

Hvernig týnir maður heilli lopapeysu? Seríösslí!!

August 24, 2008

Ólympíusilfur

Ó, jesús minn almáttugur, ég er fyrir lifandis löngu svo gjörsamlega farin á límingunum og af hjörunum! Að spila um gull á Ólympíuleikunum er svo frábær árangur að maður nær ekki einu sinni að vefja huganum utan um það, litla Ísland að komast svona langt!

Ég ákvað að skrifa ekki eitt einasta orð fyrr en þetta væri búið því ég er svo hjátrúarfull en svo veit maður ekkert hvað maður á að segja. Spennan í undanúrslitaleiknum fór með mig; ég horfði á seinni hálfleikinn á móti Spánverjum í vinnunni með nýrnalækni við hliðina á mér og slatta af hjartasérfræðingum í kringum mig og ég þurfti á því að halda. Við öskruðum, klöppuðum og þorðum varla að trúa því sem væri að gerast en svo þegar sigurinn var í höfn, var maður í einhverri leiðslu.

Eitthvað segir mér að þegar frá líður, muni maður fyllilega gera sér grein fyrir hversu gífurlegur árangur þetta er sem strákarnir hafa náð fyrir okkar hönd. Nú er bara að stefna á meira næst; það er allt í lagi að setja sér bara nýtt markmið því það sem unnið er, er svo stórt.

Ég er farin að röfla. Til hamingju, strákar, og til hamingju, Ísland!

n512001735_1131517_1466.jpg

August 19, 2008

Hetjur dagsins…

.. eru Edda Björk og Valva, frænka hennar. Þeirra vegna er ég nú stoltur eigandi Íslenskrar orðsifjabókar eftir Ásgeir Blöndal sem ég var búin að gefa upp alla von um að eignast í nánustu framtíð.

Stórt knús á þær!

August 15, 2008

Spékúlering

Hvers vegna kostar Kristall Plús 30 krónum meira en Pepsi í sjálfsala?

August 8, 2008

Ómædog, skilurðu…

Hér er allt að tæmast. Bókstaflega.

Fyndið að ég minnist á bækur… við vorum rosalega bjartsýn og sóttum einhverja tuttugu kassa úr Heiðrúnu. Þeir kláruðust á nótæm og við máttum fara fleiri ferðir til að eiga nógu mikið af kössum undir allar bækurnar. Svo á eftir að koma öllu stellinu úr samstæðunni í kassa og svo náttúrulega eldhúsið… hjálp!

Ef einhver sér einhvern kassa einhvers staðar, vill sá hinn sami vinsamlegast fleygja sér á hann, hirða og koma til okkar?

Ég er með nett víðáttubrjálæði. Það er búið að henda fjórum bókahillum, borðum og fleira dóti og það bergmálar í stofunni þegar maður talar. Þetta er allt saman voðalega skrýtið.

En ég ætla aftur yfir á facebook, þar sem ég er að finna hvern gamla skólafélagann úr Laugalækjarskóla á fætur öðrum. Gaman!

Enda á gullkorni úr sjúkraskrá:

Röntgenmynd af sjúklingi leiddi í ljós breytingar í Hafnarfirði